Til sölu vandaður sumarbústaður á ca. 12.000m² eignarlóð skammt frá Álftavatni. Í aðal húsi eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtuklefa. Í gesta húsi er hjónarúm. Auk þess fylgir geymslu og verkfæra skúr. Þak var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Vandaður pallur umlykur húsið og heitur pottur er að suð- vestanverðu við húsið. Allt innbú og lausafé í bústaðnum getur fylgt. Á lóðinni er mikill trjágróður og skjólsælt. Að bústaðnum er aksturs tími frá Reykjavík um 1/2 klst.
Áhugasamir sem vilja bóka skoðun, hafið samband í síma 8920667 eða sendið línu á:
[email protected]